Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. nóvember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristófer Konráðsson til Grindavíkur (Staðfest)
Lengjudeildin
Kristófer í leik með Leikni í sumar
Kristófer í leik með Leikni í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristófer Konráðsson er genginn til liðs við Grindavík og gerir tveggja ára samning við félagið.


Þessi 24 ára gamli leikmaður lék 12 leiki í Bestu deildinni með Leikni í sumar á láni frá Stjörnunni þar sem hann er uppalinn.

Hann leikur sem vængmaður en hann á 63 leiki að baki í deildar og bikarkeppni og skorað 8 mörk. Hann á þrjá leiki að baki með u21 árs landsliði Íslands.

Hann hefur æfingar með Grindavík í lok Nóvember en þetta er fyrsta undirbúningstímabil hans á Íslandi í nokkur ár þar sem hann lauk háskólanámi í Bandaríkjunum síðasta vor.

„Ég er virkilega ánægður að vera orðinn leikmaður Grindavíkur. Ég er mjög spenntur að vera hluti af því metnaðarfulla verkefni sem er að fara af stað hjá félaginu. Grindvíkingar hafa tekið ótrúlega vel á móti mér og ég hlakka til að klæðast gulu og bláu treyjunni,“ segir Kristófer Konráðsson, við undirskriftina.

„Við höfum fylgst mjög vel með Kristófer síðustu mánuði. Við heilluðumst strax af karakter hans og framkomu. Við vitum að í honum býr frábær knattspyrnumaður sem við vonumst til að springi út með okkar liði á næstu árum. Það er mér mikill heiður að bjóða Kristófer velkominn til félagsins,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

„Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Kristófer Konráðsson hjartanlega velkominn til félagsins og hlökkum við til að sjá hann á Grindavíkurvelli næsta sumar."


Athugasemdir
banner
banner