Fotbolti.net
03.11.22 - 18:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Pique leggur skóna á hilluna um helgina (Staðfest)

Pique leggur skóna á hilluna um helgina (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Gerard Pique varnarmaður Barcelona tilkynnti rétt í þessu að hann muni leggja skóna á hilluna um helgina.

Það hefur mikið gengið á hjá þessum 35 ára gamla leikmanni utanvallar en hann skildi við Shakiru eftir að upp komst um framhjá hald hans.

Hann hefur aðeins leikið 9 leiki á leiktíðinni og þar af fimm í byrjunarliðinu.

Hann hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna eftir leik Barcelona gegn Almeria á laugardagskvöldið í spænsku deildinni.

Hann er uppalinn í Barcelona en lék einnig með Manchester United. Hann hefur unnið spænsku og ensku deildina. Fjórum sinnum Meistaradeildina og orðið heims og Evrópumeistari með spænska landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.