Fotbolti.net
04.11.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Halldór Ingvar tekur við KF (Staðfest)

Halldór Ingvar tekur við KF (Staðfest)
Canon

Mynd: KF - Twitter

Halldór Ingvar Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari KF en hann tekur við af Slobodan Milisic en KF ákvað að framlengja ekki samninginn hans.

Slobodan stýrði liðinu í sjö ár en hann tók við liðinu í 3. deild árið 2017.

Halldór er 30 ára gamall og er fæddur og uppalinn í KF. Hann lék síðast 16 leiki með liðinu sumarið 2021 í 2. deild en hann lék sem markvörður. Hann er leikjahæsti leikmaður KF frá upphafi.

KF hafnaði í 8. sæti í 2. deild í sumar en liðið var í fimmta sæti í fyrra.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.