Fotbolti.net
05.11.22 - 13:45
Aksentije Milisic

Tómas Bjarki í Njarðvík (Staðfest)

Tómas Bjarki í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Tómas Bjarki Jónsson hefur gengið til liðs við Njarðvík en liðið mun spila í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.

Tómas er uppalinn hjá Breiðablik en hann er fæddur árið 2003. Á síðustu leiktíð spilaði hann fimm leiki með Augnablik í þriðju deildinni og skoraði tvö mörk.

Njarðvík vann 2. deildina með yfirburðum á síðustu leiktíð undir stjórn Bjarna Jóhannssonar en hann hætti með liðið eftir tímabilið og tók Arnar Hallsson við skútunni.

Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá Njarðvík á Facebook.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.