Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25204 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.10.2022, 23:00

<b>Sterkasta lið 24. umferðar</b> - Reynsluboltar og einn fæddur 2006

24. umferð Bestu deildarinnar er umferðin þar sem það varð ljóst að Breiðablik er Íslandsmeistari 2022! Til hamingju Blikar! Þeir unnu KA um helgina 2-1 á útivelli en eftir tap Víkings gegn Stjörnunni 2-1 í kvöld varð (Staðfest) að Íslandsmeistaraskjöldurinn fer í Kópavog. <b>Óskar Hrafn Þorvaldsson</b> er því sjálfkrafa þjálfari þessarar umferðar og Blikar eiga auk þess þrjá leikmenn í úrvalsliðinu. <b>Jason Daði Svanþórsson</b> skoraði sigurmarkið og þá eru <b>Höskuldur Gunnlaugsson</b> og <b>Viktor Karl Einarsson</b> einnig í liðinu.

FRÉTTIR10.10.2022, 15:17

Emil Ásmundsson snýr aftur í Fylki (Staðfest)

<p>Fylkir tilkynnti í dag að Emil Ásmundsson sé genginn í raðir félagsins að nýju frá KR. Hann lék á láni frá KR á síðari hluta þessa tímabils en semur nú við Árbæjarliðið til ársins 2024 með möguleika á framlengingu um eitt ár. Emil skoraði 4 mörk í 11  leikjum með Fylki í sumar.</p><p>Hann hafði gengið til liðs við KR fyrir tímabilið 2020 en dvöl hans í vesturbænum var þyrnum stráð, hann missti af fyrsta tímabilinu öllu vegna meiðsla  og spilaði aðeins tvo leiki í efstu deild 2021. Hann hafði ekki spilað leik þegar hann var lánaður í Fylki í sumar en hann hjálpaði Árbæingum að vinna Lengjudeildina og tryggja sér sæti í Bestu deildinni.</p>

FRÉTTIR10.10.2022, 12:41

Atletico búið að kaupa Griezmann (Staðfest)

Atletico Madrid hefur keypt Antoine Griezmann frá Barcelona en hann hefur verið hjá félaginu á lánssamningi. Franski sóknarmaðurinn hefur skrifað undir samning til 30. júní 2026.

FRÉTTIR10.10.2022, 09:14

Bruce rekinn frá West Brom (Staðfest)

Steve Bruce hefur verið rekinn frá West Bromwich Albion eftir sex mánuði við stjórnvölinn. Þessi 61 árs fyrrum varnarmaður Manchester United yfirgefur West Brom eftir jafntefli gegn Luton um helgina. West Brom er í fallsæti, í 22. sæti Championship-deildarinnar, og hefur ekki verið eins neðarlega í yfir 20 ár.

FRÉTTIR09.10.2022, 16:51

Helgi Sig tekur við Grindavík (Staðfest)

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur tilkynnt ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks karla. Helgi Sigurðsson mun taka við starfinu af Alfreð Elíasi Jóhannssyni.

FRÉTTIR06.10.2022, 15:41

Eiður Smári stígur til hliðar hjá FH (Staðfest)

FH hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að Eiður Smári Guðjohnsen hafi ákveðið í samráði við félagið að stíga til hliðar sem þjálfari liðsins. Sagt er að Eiður Smári ætli að vinna í sínum málum en vonast sé til þess að hann muni snúa aftur til starfa hjá FH í náinni framtíð. Stjórn FH fundaði um stöðuna í morgun en <a href="https://fotbolti.net/news/06-10-2022/eidur-smari-sagdur-hafa-verid-tekinn-vid-olvunarakstur-eftir-aefingu" target="_blank">fjallað hefur verið um</a> að Eiður Smári hafi verið handtekinn vegna ölvunaraksturs í vikunni. Sigurvin Ólafsson, sem var aðstoðarmaður Eiðs, tekur við þjálfun liðsins. Það stóð ekki í upphaflegri tilkynningu en var svo bætt við. Eiður, sem er einn besti fótboltamaður sem komið hefur frá Íslandi, tók við FH á nýjan leik í sumar. Eiður var þar áður aðstoðarþjálfari A-landsliðsins en hann var látinn fara frá KSÍ undir lok síðasta árs vegna áfengisneyslu í landsliðsferð. FH er í harðri fallbaráttu í Bestu deildinni og er í fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið á gríðarlega mikilvægan fallbaráttuslag gegn Leikni í Kaplakrika á sunnudaginn.

FRÉTTIR05.10.2022, 22:44

Lopetegui rekinn frá Sevilla (Staðfest)

Spænska félagið tilkynnti í kvöld þá ákvörðun að reka Julen Lopetegui, þjálfara liðsins, en þetta kom fram eftir 4-1 tap liðsins gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.