Fotbolti.net
10.10.22 - 09:14
Elvar Geir Magnússon

Bruce rekinn frá West Brom (Staðfest)

Bruce rekinn frá West Brom (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce hefur verið rekinn frá West Bromwich Albion eftir sex mánuði við stjórnvölinn. Þessi 61 árs fyrrum varnarmaður Manchester United yfirgefur West Brom eftir jafntefli gegn Luton um helgina.

West Brom er í fallsæti, í 22. sæti Championship-deildarinnar, og hefur ekki verið eins neðarlega í yfir 20 ár.
Unglingaliðsþjálfarinn Richard Beale tekur við stjórnartaumunum til bráðabirgða.

Bruce hefur víða komið við á ferlinum og var ráðinn stjóri West Brom þann 3. febrúar. Hann hefur þjálfað í 24 ár og fjórum sinnum komist upp í úrvalsdeildina, tvívegis með Birmingham City og tvisvar með Hull City.

Bruce átti erfiða síðustu mánuði sem stjóri Newcastle og eftir að hann var rekinn þaðan sagðist hann líklega ætla að leggjast í helgan stein. En hann samdi svo við West Brom en liðið vann aðeins átta af 32 leikjum hans við stjórnvölinn.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Birmingham000
1Coventry46+5295
1Cardiff City5+815
2Blackburn000
2Ipswich Town46+3384
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3Bolton000
4Wolves5+310
4Bristol City000
5Burnley000
5Sheffield Utd5+19
6Hull City46+473
6Nott. Forest509
6Cardiff City000
7Preston NE5+18
7Charlton Athletic000
8Hull City5+57
8Derby County000
9Lincoln City000
9Middlesbrough5+17
10Middlesbrough000
10QPR507
11Millwall000
11Reading507
12Norwich000
12Derby County5-27
13Bristol City5+16
13Portsmouth000
14Fulham5+16
14Preston NE000
15QPR000
15Barnsley506
16Sheffield Utd000
16Sheffield Wed506
17Millwall5+25
17Southampton000
18Aston Villa5-25
18Stoke City000
19Swansea000
19Sunderland5-35
20Birmingham5-34
20Watford000
21Burton Albion5-54
21West Brom000
22Norwich5-64
22Oxford United46-1447
22West Ham000
23Brentford5-42
23Leicester City46-1046
23Wolves000
24Bolton5-62
24Sheffield Wed46-600
24Wrexham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.