Vilhjálmur Kári Haraldsson og Kristrún Lilja Daðadóttir hafa gert samning þess efnis að þjálfa kvennalið Augnabliks á næstu leiktíð.
Kristrún Lilja hefur stýrt Augnabliki - sem er venslafélag Breiðabliks - undanfarin tvö ár og hefur liðið haldið sér uppi í Lengjudeildinni undir hennar stjórn.
Núna kemur Vilhjálmur Kári aftur inn í teymið en hann stýrði liðinu áður en Kristrún, eða Kitta eins og hún er kölluð, tók við. Vilhjálmur stýrði Breiðabliki í fyrra.
Tilkynning Augnabliks
Vilhjálmur Haraldsson og Kristrún Daðadóttir stýra Augnablik á komandi tímabili!
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við þau Vilhjálm Kára Haraldsson og Kristrúnu Lilju Daðadóttur um að stýra liði Augnabliks kvenna á komandi keppnistímabili.
Kristrún stýrði liðinu á nýliðnu tímabili en nú hefur Vilhjálmur Kári einnig gengið til liðs við félagið.
Vilhjálmur stýrði liði Augnabliks tímabilin 2019 og 2020 við góðan orðstír en hann hefur einnig stýrt meistaraflokki kvenna. Nú síðast var hann í þjálfarateymi 2. flokks karla á nýliðnu tímabili.
Það er ánægjulegt að Kitta og Villi skuli aftur vinna saman og óskum við þeim góðs gengis - Áfram Augnablik!
Athugasemdir