FRÉTTIR01.09.2022, 12:25
Burnley hefur fengið sóknarmanninn Halil Dervisoglu í sínar raðir frá Brentford. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum sínum.
Dervisoglu kemur á láni út tímabilið og kemur til með að auka breiddina í sóknarlínu Burnley. Hann er fimmtándi leikmaðurinn sem Burnley fær til sín í sumar.
Dervisoglu er 22 ára og kom til Brentford árið 2019 frá Spörtu í Rotterdam. Hann hefur síðustu tvö tímabil á láni frá Brentford, fyrst hjá Twente í Hollandi og svo hjá Galatasaray í Tyrklandi.
FRÉTTIR01.09.2022, 12:07
Nottingham Forest hefur fengið varnarmanninn Willy Boly frá Wolverhampton Wanderers og er hann nítjándi leikmaðurinn sem gengur í raðir Forest í sumar.
Fílabeinsstrendingurinn er 31 árs og hefur gert tveggja ára samning við nýliða ensku úrvalsdeildarinnar.
FRÉTTIR01.09.2022, 11:01
Leicester er búið að krækja í belgíska miðvörðinn Wout Faes frá Reims í Frakklandi. Hann er 24 ára og á einn landsleik fyrir Belga.
Hann er keyptur til að fylla skarð Wesley Fofana sem fór til Chelsea.
FRÉTTIR01.09.2022, 10:41
Josko Gvardiol er miðvörður RB Leipzig og króatíska landsliðsins. Hann hefur talsvert verið orðaður í burtu frá Leipzig í sumar en hann hefur ákveðið að framlengja samning sinn við félagið.
Nýi samningurinn gildir fram á sumarið 2027. Gvardiol er tvítugur og hefur þegar leikið tíu A-landsleiki.
FRÉTTIR01.09.2022, 09:49
Danski landsliðsmaðurinn Kasper Dolberg hefur skipt úr Nice í Frakklandi yfir til spænska liðsins Sevilla. Þessi 24 ára sóknarmaður kemur á lánssamningi en Sevilla er með möguleika á að kaupa hann alfarið.
FRÉTTIR01.09.2022, 09:25
Miðjumaðurinn stóri og stæðilegi Oriol Romeu er orðinn leikmaður spænska félagsins Girona eftir sjö ár hjá Southampton. Hann gekk í raðir Southampton frá Chelsea 2015.
Romeu er þrítugur og spilaði samtals 256 leiki fyrir Southampton. Hann skoraði átta mörk á tíma sínum á suðurströnd Englands.
FRÉTTIR01.09.2022, 09:14
Miðvörðurinn Manuel Akanji er orðinn leikmaður Manchester City. Englandsmeistararnir kaupa þennan 27 ára svissneska landsliðsmann frá Borussia Dortmund.
Akanji hóf feril sinn á FC Winterthur í heimalandinu áður en hann fór til Basel. Þar vakti hann áhuga Dortmund sem keypti hann í janúar 2018.
Á fjóru og hálfu ári hjá Dortmund spilaði hann 158 leiki og varð þýskur bikarmeistari 2021.
FRÉTTIR01.09.2022, 08:52
Manchester United hefur kynnt Antony formlega. Þessi 22 ára brasilíski kantmaður er keyptur frá Ajax á 82 milljónir punda. Hann skrifaði undir samning til 2027.
FRÉTTIR01.09.2022, 08:10
Fótbolti.net fylgist með öllu því helsta sem gerist á gluggadeginum í beinni textalýsingu. Glugganum verður lokað klukkan 22:00 í ensku úrvalsdeildinni.
Hér koma inn allar helstu slúðursögurnar sem eru í gangi, staðfestar fréttir og ýmsar vangaveltur.
<a href="https://fotbolti.net/news/01-09-2022/b-gluggakvoldvaktin-i-beinni-b-glugganum-lokad-22" target="_blank">Smelltu hér til að fara yfir á kvöldvaktina</a>
FRÉTTIR01.09.2022, 07:00
Pálmi Rafn Arinbjörnsson, markvörður Wolves á Englandi, mun spila með norska B-deildarliðinu Skeid á láni út tímabilið en gengið var frá skiptunum í gær.
FRÉTTIR01.09.2022, 06:00
Ajax tókst að næla sér í Lucas Ocampos, leikmann Sevilla, á láni á síðustu klukkutímum gluggans, en hann mun fylla skarð Antony sem er farinn til Manchester United.
FRÉTTIR01.09.2022, 06:00
Ítalski framherjinn Mario Balotelli skrifaði í gær undir tveggja ára samning við svissneska félagið Sion. Þetta er ellefta félagið sem hann spilar fyrir á ferlinum.
FRÉTTIR31.08.2022, 20:10
Enska B-deildarfélagið Sunderland hefur gengið frá lánssamningi við Manchester United um Fílabeinsstrendinginn Amad Diallo.
FRÉTTIR31.08.2022, 19:25
Belgíski vængmaðurinn Adnan Januzaj skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Sevilla á Spáni.
FRÉTTIR31.08.2022, 18:24
Enski vinstri bakvörðurinn Joe Bryan mun spila í frönsku úrvalsdeildinni á komandi tímabili en hann er genginn til liðs við Nice á láni frá Fulham.
FRÉTTIR31.08.2022, 16:30
Hollenski kantmaðurinn Anwar El Ghazi er genginn í raðir PSV Eindhoven í Hollandi eftir fjögurra ára dvöl hjá Aston Villa.
Þessi 27 ára leikmaður hjálpaði Aston Villa að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili en hann skoraði mikilvægt fyrsta mark liðsins í úrslitaleik umspilsins á Wembley.
FRÉTTIR31.08.2022, 16:11
Leandro Paredes hefur skrifað undir samning við ítalska stórliðið Juventus, hann kemur frá Paris Saint-Germain á lánssamningi með möguleika á kaupum eftir tímabilið.
Paredes er 28 ára argentínskur miðjumaður sem hóf aðalliðsferil sinn hjá Boca Juniors í heimalandinu. Hann lék svo fyrir Chievo Verona, Roma og Empoli á Ítalíu og Zenit í Rússlandi.
2019 gekk hann í raðir PSG og var hjá félaginu í fjögur tímabil. Þrisvar varð hann Frakklandsmeistari og tvívegis bikarmeistari.
FRÉTTIR31.08.2022, 12:41
Chelsea hefur tilkynnt um kaup á franska varnarmanninum Wesley Fofana frá Leicester og skrifaði hann undir sjö ára samning. Chelsea hefur verið að styrkja vörn sína og fékk Kalidou Koulibaly og Marc Cucurella fyrr í sumar.
<i>„Síðustu tveir dagar hafa verið mjög stórir fyrir mig og ég er mjög ánægður. Ég æfði í morgun með liðinu og ég er mjög spenntur fyrir því að spila leiki fyrir félagið og stuðningsmenn,"</i> segir Fofana sem er 21 árs.
FRÉTTIR31.08.2022, 10:41
Sunderland í Championship-deildinni hefur fengið hinn nítján ára gamla Edouard Michut lánaðan frá Frakklandsmeisturum Paris St-Germain til loka tímabilsins.
Michut er fjölhæfur miðjumaður sem hefur komið við sögu í sex leikjum með aðalliði PSG og leikið fyrir yngri landslið Frakklands.
Hann var ósáttur við að vera ekki valinn í leikmannahóp PSG í æfingaferð á undirbúningstímabilinu. Hann mætti svo ekki á fund hjá félaginu þar sem átti að ræða um framtíð hans og fékk hann aðvörun.
FRÉTTIR31.08.2022, 10:30
Enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers hefur keypt austurríska sóknarmanninn Sasa Kalajdzic frá Stuttgart á 15,5 milljónir punda.
Þessi 25 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning með möguleika á einu ári til viðbótar.
Hinn hávaxni Kalajdzic mun berjast við Raul Jimenez, sem hefur verið að glíma við meiðsli, um byrjunarliðssæti. Hwang Hee-chan er einnig á mála hjá Úlfunum en þykir ekki rétta tegundin af sóknarmanni til að leysa Jimenez nógu vel af hólmi.