Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 08:52
Elvar Geir Magnússon
Man Utd kynnir Antony formlega (Staðfest)
Antony er formlega orðinn leikmaður Manchester United.
Antony er formlega orðinn leikmaður Manchester United.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur kynnt Antony formlega. Þessi 22 ára brasilíski kantmaður er keyptur frá Ajax á 82 milljónir punda. Hann skrifaði undir samning til 2027.

„Þetta er mögnuð stund á ferli mínum, að ganga í raðir eins sögufrægasta félags heims," segir Antony.

„Ég er þakklátur öllum sem hafa haft trú á mér, sérstaklega fjölskyldu minni, öllum þjálfurum mínum og liðsfélögum. Ég hefði ekki getað náð hingað án þeirra."

„Það var fullkomið fyrir mig og mína framþróun að spila undir stjórn Erik ten Hag hjá Ajax. Hans leikstíll og þjálfun kallar fram það besta í mér og ég varð spenntur þegar hann sagði mér frá áætlunum sínum og metnaði Manchester United."

Sjá einnig:
Man Utd að fá skemmtikraft en ekki markaskorara í Antony


Athugasemdir
banner
banner