Fotbolti.net
31.08.22 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

El Ghazi til PSV (Staðfest)

El Ghazi til PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski kantmaðurinn Anwar El Ghazi er genginn í raðir PSV Eindhoven í Hollandi eftir fjögurra ára dvöl hjá Aston Villa.

Þessi 27 ára leikmaður hjálpaði Aston Villa að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili en hann skoraði mikilvægt fyrsta mark liðsins í úrslitaleik umspilsins á Wembley.
Hann hefur alls leikið um 100 leiki fyrir Villa en var lánaður til Everton seinni hluta síðasta tímabils.

El Ghazi kom ekkert við sögu í fyrstu leikjum Villa á þessu tímabili.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.