Fotbolti.net
31.08.22 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Januzaj skrifaði undir fjögurra ára samning við Sevilla (Staðfest)

Adnan Januzaj er mættur til Sevilla

Adnan Januzaj er mættur til Sevilla

Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski vængmaðurinn Adnan Januzaj skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Sevilla á Spáni.
Januzaj, sem er 27 ára gamall, hefur verið án félags síðan í byrjun sumars eða síðan hann yfirgaf Real Sociedad.

Hann var með nokkur tilboð á borðinu en leist best á Sevilla og skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við félagið.

West Ham United var eitt þeirra félaga sem höfðu áhuga á að fá hann en David Moyes vann með honum hjá Manchester United og Sunderland.

Januzaj á 15 landsleiki að baki fyrir Belgíu og eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.