Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25208 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.08.2022, 14:16

Barkley riftir við Chelsea (Staðfest)

Ross Barkley er farinn frá Chelsea, félagið staðfestir það með færslu á samfélagsmiðlum og segir að samkomulag hafi náðst um riftun á samningi.

FRÉTTIR29.08.2022, 09:18

Renan Lodi til Nottingham Forest (Staðfest)

Nottingham Forest hefur fengið brasilíska bakvörðinn Renan Lodi lánaðan frá Atletico Madrid út tímabilið. Þessi 24 ára leikmaður er sautjándi leikmaðurinn sem Forest fær til sín í sumar.

FRÉTTIR26.08.2022, 19:17

Neal Maupay til Everton (Staðfest)

<p>Everton er búið að festa kaup á franska framherjanum Neal Maupay sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Brighton.</p>

FRÉTTIR26.08.2022, 17:00

Hwang Ui-jo til Forest (Staðfest) - Lánaður til Olympiacos

Nottingham Forest hefur keypt sóknarmanninn Hwang Ui-jo frá Bordeaux en þessi landsliðsmaður Suður-Kóreu hefur samstundis verið lánaður til gríska meistaraliðsins Olympiacos út þetta tímabil. Hwang er 29 ára og hefur spilað 47 landsleiki fyrir þjóð sína. Bordeaux fékk hann frá Gamba Osaka 2019.

FRÉTTIR26.08.2022, 15:20

Milos tekur óvænt við Rauðu stjörnunni (Staðfest)

Milos Milojevic er næsti þjálfari Rauðu stjörnunnar í Serbíu, það er búið að ganga frá þeirri ráðningu. Dejan Stankovic, fyrrum leikmaður Inter, ákvað að segja starfi sínu lausu í dag eftir að liðinu mistókst að komast í Meistaradeildina.

FRÉTTIR26.08.2022, 13:50

Alexander Isak til Newcastle fyrir metupphæð (Staðfest)

Newcastle United hefur kynnt Alexander Isak sem nýjan leikmann félagsins. Félagið gefur ekki upp kaupverðið en samkvæmt <i>Sky Sports</I> greiðir Newcastle 63 milljónir punda fyrir framherjann sem kemur frá Real Sociedad á Spáni.

FRÉTTIR25.08.2022, 16:25

Dele Alli til Besiktas (Staðfest) - Tvær milljónir í lánsfé

Dele Alli hefur verið lánaður til tyrkneska félagsins Besiktas út tímabilið. Þetta hafa bæði félögin staðfest. Alli er 26 ára miðjumaður sem gekk í raðir Everton frá Tottenham í janúar. Hann kom við sögu í tveimur leikjum í upphafi tímabilsins en frá því viðræður við Besiktas hófust hefur hann ekki komið sögu.

FRÉTTIR25.08.2022, 16:00

Haksabanovic til Celtic (Staðfest)

Svartfellingurinn Sead Haksabanovic hefur gengið í raðir Skotlandsmeistara Celtic, frá Rubin Kazan. Hann fór til Djurgarden í Svíþjóð á þriggja mánaða lánssamningi eftir innrás Rússlands í Úkraínu

FRÉTTIR25.08.2022, 14:29

Milik til Juventus (Staðfest)

Pólski landsliðssóknarmaðurinn Arek Milik fór í læknisskoðun hjá ítalska stórliðinu Juventus í dag og skrifaði svo í kjölfarið undir samning við félagið. Hann lenti í Tórínó í morgun og kemur á 2 milljóna evra lánssamningi frá Marseille. Ítalska félagið skuldbindur sig til að kaupa svo leikmanninn á 8 milljónir evra. Milik er 28 ára og skoraði 38 mörk í 93 leikjum í ítölsku A-deildinni á þremur og hálfu ári hjá Napoli.

FRÉTTIR25.08.2022, 09:42

Umtiti orðinn samherji Þóris hjá Lecce (Staðfest)

Varnarmaðurinn Samuel Umtiti hefur gengið í raðir ítalska félagsins Lecce á lánssamningi frá Barcelona. Þessi 28 ára franski miðvörður hefur verið mikið á meiðslalistanum síðustu ár. Hann vonast til að endurræsa feril sinn hjá Lecce en Barcelona mun halda áfram að borga meirihluta af launum hans.

FRÉTTIR24.08.2022, 19:34

Bailly til Marseille á láni (Staðfest)

<p>Manchester United hefur staðfest að Eric Bailly hafi yfirgefið félagið en hann fer til franska liðsins Marseille á láni með möguleika á því að vera keyptur eftir tímabilið.</p>

FRÉTTIR24.08.2022, 12:39

Daníel Tristan í Malmö (Staðfest)

Malmö, sigursælasta félagið í Svíþjóð, hefur formlega tilkynnt um það að Daníel Tristan Guðjohnsen sé genginn í raðir félagsins.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.