Milos tekur óvænt við Rauðu stjörnunni (Staðfest)

Milos Milojevic.

Mynd: Raggi Óla

Milos Milojevic.

Mynd: Raggi Óla
Milos Milojevic er næsti þjálfari Rauðu stjörnunnar í Serbíu, það er búið að ganga frá þeirri ráðningu.
Dejan Stankovic, fyrrum leikmaður Inter, ákvað að segja starfi sínu lausu í dag eftir að liðinu mistókst að komast í Meistaradeildina.

Rauða stjarnan, sem er stærsta félagið í Serbíu, var fljótt að bregðast við og hefur ráðið Milos sem nýjan aðalþjálfara.
Milos er með íslenskan ríkisborgararétt og er fyrrum þjálfari Breiðabliks og Víkings. Hann fór til Svíþjóðar eftir dvölina á Íslandi gerði þar góða hluti með Mjällby. Hann fékk svo tækifæri til að gerast aðstoðarþjálfari hjá Stankovic í Serbíu.
Hann fór svo aftur til Svíþjóðar og var aðalþjálfari Hammarby áður en hann tók við Malmö, sem er sigurælasta félagið í Svíþjóð, fyrir þessa leiktíð. Árangurinn hjá Malmö var ekki nægilega góður og var hann látinn fara fyrr í sumar.
Núna er hann mættur aftur til Rauðu stjörnunnar en núna sem aðalþjálfari. Þetta eru svo sannarlega stór tíðindi.

FK Crvena zvezda informs the public that Miloš Milojević has been appointed new Head Coach.
— FK Crvena zvezda in English (@crvenazvezda_en) August 26, 2022
The well-known coach has been Dejan Stanković's assistant between 2019 and 2021 and will now be his successor.
We wish Miloš Milojević all the success in the Zvezda dugout! #FKCZ 🔴⚪ pic.twitter.com/Qgv1jDZAPL