Everton sendir Gbamin til Tyrklands (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Everton er búið að lána miðjumanninn varnarsinnaða Jean-Philippe Gbamin til Trabzonspor í Tyrklandi.
Gbamin er 26 ára gamall landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar. Hann spilaði 20 leiki fyrir U19 og U21 landslið Frakka en skipti um landslið þegar hann fékk ekki kallið upp í A-landsliðið.
Everton borgaði 25 milljónir punda fyrir Gbamin fyrir þremur árum en hann hefur lent í hverju meiðslaveseninu fætur öðru á dvöl sinni hjá félaginu. Miðjumaðurinn hefur spilað átta leiki í heildina fyrir félagið og á ennþá tvö ár eftir af samningnum.
Trabzonspor er með leikmenn á borð við Marek Hamsik, Andreas Cornelius og Trezeguet innanborðs og er ríkjandi Tyrklandsmeistari.
O da artık bir fırtına. 🌪️
— Trabzonspor (@Trabzonspor) August 26, 2022
Trabzonspor'a hoş geldin Jean-Philippe Gbamin! ❤️💙 pic.twitter.com/P9RiEDoAiv




