Fotbolti.net
27.08.22 - 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Herrera kominn aftur heim - PSG lánar hann út tímabilið (Staðfest)

Ander Herrara snýr aftur til Athletic Bilbao

Ander Herrara snýr aftur til Athletic Bilbao

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski miðjumaðurinn Ander Herrera er mættur aftur heim til Athletic Bilbao á láni frá Paris Saint-Germain. Þetta tilkynnti spænska félagið á heimasíðu sinni í dag.
Herrara, sem er 33 ára gamall, er fæddur og uppalinn í Bilbao á Spáni en hann hóf feril sinn hjá Real Zaragoza áður en hann var seldur til Bilbao.

Þar spilaði hann í þrjú ár áður en Manchester United keypti hann fyrir 24 milljónir punda. Herrara þótti vinsæll hjá United þar sem hann spilaði 189 leiki og skoraði 20 mörk.

Hann gekk í raðir Paris Saint-Germain fyrir þremur árum og spilaði þar 95 leiki og gerði 6 mörk en hann var í aukahlutverki á síðustu leiktíð með liðinu.

Herrera er nú mættur aftur til Athletic Bilbao á láni frá PSG en spænska félagið getur fest kaup á honum á lánstímanum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.