Arsenal lánar Salah-Eddine og Norton-Cuffy (Staðfest)

Hull getur keypt Salah-Eddine fyrir 10 milljónir punda.

Mynd: Getty Images

Hull getur keypt Salah-Eddine fyrir 10 milljónir punda.

Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að selja og lána út 28 leikmenn í heildina í sumar eftir að tveir nýir bættust við listann á dögunum.
Arsenal er nefnilega búið að lána ungstirni sín Salah-Eddine Oulad M'hand til Hull City og Brooke Norton-Cuffy til Rotherham.
Salah-Eddine er miðjumaður og mun klæðast tíunni þar sem hann er hugsaður sem lykilmaður þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall.
Norton-Cuffy er hægri bakvörður með leiki að baki fyrir unglingalandsliðið. Hann var lánaður til Lincoln City í fyrra og nú reynir hann að taka stökkið upp í næstefstu deild.
Hann er mikilvægur hlekkur í yngri landsliðum Englands, þar sem hann vann EM U19 ára landsliða í sumar.




