Fotbolti.net
25.08.22 - 16:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dele Alli til Besiktas (Staðfest) - Tvær milljónir í lánsfé

Dele Alli til Besiktas (Staðfest) - Tvær milljónir í lánsfé
Canon

Mynd: Getty Images

Dele Alli hefur verið lánaður til tyrkneska félagsins Besiktas út tímabilið. Þetta hafa bæði félögin staðfest.

Alli er 26 ára miðjumaður sem gekk í raðir Everton frá Tottenham í janúar. Hann kom við sögu í tveimur leikjum í upphafi tímabilsins en frá því viðræður við Besiktas hófust hefur hann ekki komið sögu.
Hann á að baki 37 landsleiki fyrir England og hefur komið við sögu í þrettán leikjum með Everton frá komu sinni á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar.

Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá því að Besiktas geti nýtt sér ákvæði í lánssamningnum til þess að festa kaup á Alli. Besiktas þurfi að greiða sex milljónir punda ef félagið nýtir sér ákvæðið fyrir 1. janúar en eftir það hækkar verðið upp í átta milljónir punda. Besiktast greiðir Everton ekkert lánsfé heldur greiðir tyrkneska félagið laun Alli á meðan lánsstímanum stendur.

Besiktas segir frá því á heimasíðu sinni að félagið greiði Everton 2,2 milljónir evra fyrir að fá Alli að láni út tímabilið. Einnig er sagt frá því að hann fái að hámarki tíu þúsund evrur í bónus fyrir hvern spilaðan leik. Leikjabónusinn fer eftir því hversu margar mínútur hann spilar í leiknum og í hvaða keppni leikurinn er.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.