Fotbolti.net
26.08.22 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Hwang Ui-jo til Forest (Staðfest) - Lánaður til Olympiacos

Hwang Ui-jo til Forest (Staðfest) - Lánaður til Olympiacos
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest hefur keypt sóknarmanninn Hwang Ui-jo frá Bordeaux en þessi landsliðsmaður Suður-Kóreu hefur samstundis verið lánaður til gríska meistaraliðsins Olympiacos út þetta tímabil.

Hwang er 29 ára og hefur spilað 47 landsleiki fyrir þjóð sína. Bordeaux fékk hann frá Gamba Osaka 2019.
Hwang skoraði 29 mörk fyrir Bordeaux, þar af ellefu á síðasta tímabili.

Grikkinn Evangelos Marinakis sem er eigandi Nottingham Forest er einnig eigandi Olympiacos.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.