Bailly til Marseille á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Manchester United hefur staðfest að Eric Bailly hafi yfirgefið félagið en hann fer til franska liðsins Marseille á láni með möguleika á því að vera keyptur eftir tímabilið.
Ef Marseille ákveður að kaupa hann næsta sumar er talið að þeir þurfi að borga United 5 milljónir punda fyrir þennan 28 ára gamla Fílbeinstrending.
Bailly er miðvörður og hefur leikið 113 leiki fyrir United síðan hann gekk til liðs við félagið frá Villarreal sumarið 2016.
United bætti við sig miðverði í sumar en Lisandro Martinez mun berjast við Harry Maguire, Victor Lindelof og Raphael Varane um stöðuna.
Good luck for the 2022/23 season at Marseille, @EricBailly24 👊#MUFC
— Manchester United (@ManUtd) August 24, 2022




