Arsenal lánar Pepe til Nice (Staðfest)

Nicolas Pepe er farinn til Nice

Mynd: Getty Images

Nicolas Pepe er farinn til Nice

Mynd: Getty Images
Fílabeinsstrendingurinn Nicolas Pepe er genginn í raðir Nice á láni frá Arsenal. Þetta staðfestir enska félagið í dag.
Pepe, sem er 27 ára gamall, er dýrasti leikmaðurinn í sögu Arsenal en hann var keyptur til félagsins frá Lille fyrir 72 milljónir punda fyrir þremur árum.
Vængmaðurinn tókst engan veginn að standast þær væntingar sem gerðar voru til hans.
Hann kom ekkert við sögu í fyrstu þremur deildarleikjum Arsenal á þessu tímabili og hefur það nú fengist staðfest að hann muni snúa aftur í frönsku deildina.
Pepe er mættur til Nice á láni út þessa leiktíð. Samkvæmt fréttum á Englandi er engin klásúla í samningnum og er því aðeins um venjulegan lánssamning að ræða þar sem Nice mun greiða meirihluta af launakostnaðinum.
Fílabeinsstrendingurinn vonast til að finna sitt gamla form hjá Nice en hann var valinn í lið ársins í frönsku deildinni áður en hann var keyptur til Arsenal.