Fotbolti.net
27.08.22 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson

Udinese kaupir Kamara fyrir Udogie peninginn (Staðfest)

Udinese kaupir Kamara fyrir Udogie peninginn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Udinese er búið að festa kaup á Hassane Kamara, 28 ára vinstri bakverði Watford og landsliðs Fílabeinsstrandarinnar.

Kamara á að fylla í skarðið sem hinn öflugi Destiny Udogie skilur eftir sig. Tottenham keypti Udogie í sumar og lánaði strax aftur til Udinese út tímabilið.

Þegar Udogie fer í burtu næsta sumar gæti Kamara reynst mikilvægur til að fylla í skarðið. Udinese borgar svipað mikið fyrir Kamara og það fær fyrir söluna á Udogie og kemur því út á núlli.

Kamara er búinn að spila fjóra deildarleiki með Watford á tímabilinu og mun klára tímabilið á láni hjá enska félaginu. Hann gengur því í raðir Udinese eftir eitt ár til að taka við af Udogie.

Kamara yrði ekki fyrsti bakvörðurinn til að skipta á milli þessara félaga því Adam Masina, annar vinstri bakvörður, fór svipaða leið fyrr í sumar og skoraði strax í fyrstu umferð hjá Udinese.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.