Fotbolti.net
24.08.22 - 12:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Daníel Tristan í Malmö (Staðfest)

Daníel Tristan Guðjohnsen.

Daníel Tristan Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Malmö

Malmö, sigursælasta félagið í Svíþjóð, hefur formlega tilkynnt um það að Daníel Tristan Guðjohnsen sé genginn í raðir félagsins.
Arnar Laufdal, fréttamaður á Fótbolta.net, var fyrstur til að greina frá þessum tíðindum fyrir einum og hálfum mánuði síðan.

Daníel Tristan er yngsti sonur Eiðs Smára Guðjohnsen og Ragnheiðar Sveinsdóttur, en hann er fæddur árið 2006.

Hann er uppalinn á Spáni og spilaði með unglingaliði Barcelona áður en hann færði sig yfir til Real Madrid fyrir fjórum árum. Hann þykir gríðarlega efnilegur og hefur hann staðið sig vel í akademíu Madrídarstórveldisins.

Daníel á að baki sjö landsleiki fyrir U16 og U17 ára landslið Íslands og hefur hann gert eitt mark.

Fram kemur á heimasíðu Malmö að Daníel Tristan muni spila með U19 liði félagsins fyrst um sinn en litið sé á hann framtíðarmann í aðalliðinu. „Það er góð tilfinning að vera núna í stærsta félaginu í Svíþjóð," segir leikmaðurinn efnilegi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.