Burnley fær markvörð frá PSG (Staðfest) - Breaking Bad kynning


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Burnley er búið að krækja í nýjan markvörð, Ítalann Denis Franchi sem kemur frá franska stórveldinu PSG og skrifar undir þriggja ára samning.
Vincent Kompany stjóri Burnley hringdi sjálfur í Franchi til að sannfæra hann um að skipta yfir og skrifaði markvörðurinn undir þriggja ára samning.
Franchi, sem verður tvítugur í október, á leiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu. Hann ólst upp hjá Udinese en var fenginn yfir til PSG fyrir þremur árum án þess að spila fyrir aðalliðið.
„Við erum mjög ánægðir með að bjóða Denis velkominn í hópinn. Hann er gríðarlega spennandi markvörður með framtíðina fyrir sér og er partur af langtímaplani félagsins."




