Fotbolti.net
26.08.22 - 19:17
Ívan Guðjón Baldursson

Neal Maupay til Everton (Staðfest)

Maupay hefur ekki fengið tækifæri með sterku landsliði Frakklands en var mikilvægur hlekkur upp yngri landsliðin.

Maupay hefur ekki fengið tækifæri með sterku landsliði Frakklands en var mikilvægur hlekkur upp yngri landsliðin.

Canon

Mynd: EPA

Everton er búið að festa kaup á franska framherjanum Neal Maupay sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Brighton.

Maupay var eftirsóttur af nokkrum úrvalsdeildarfélögum í sumar, fyrst Nottingham Forest og svo Fulham, en endaði að lokum hjá Frank Lampard og lærlingum hans.

Everton er í basli í framlínunni eftir að Richarlison var seldur í sumar og Dominic Calvert-Lewin meiddist. Salomon Rondon er eini heilbrigði sóknarmaðurinn í leikmannahópinum en nú bætist Maupay við og gæti spilað strax gegn sínum fyrrum liðsfélögum í Brentford á morgun. 

Hinn 26 ára gamli Maupay hefur skorað 26 mörk í 102 úrvalsdeildarleikjum með Brighton en Danny Welbeck er búinn að hrifsa byrjunarliðsstöðuna til sín.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við Everton, með möguleika á auka ári.

Kantmaðurinn Anthony Gordon hefur verið að leysa stöðu fremsta sóknarmanns af hólmi í fjarveru Calvert-Lewin. Rondon hefur fengið tækifæri en er ekki hátt skrifaður í bókum Lampard.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.