Fotbolti.net
27.08.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Aston Villa lánar Hause til Watford (Staðfest)

Aston Villa lánar Hause til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Watford er búið að tryggja sér varnarmanninn Kortney Hause á eins árs lánssamningi frá Aston Villa.

Hause er 27 ára miðvörður sem á leiki að baki fyrir Wolves auk Aston Villa en hefur aldrei tekist að festa sig í sessi í byrjunaliði.

Hann hefur spilað 32 úrvalsdeildarleiki og rétt tæpa 80 í Championship og ætti því að búa yfir þeirri reynslu sem þarf í toppbaráttunni með Watford.

Hause er annar leikmaðurinn úr röðum Villa til að skipta yfir til Watford á lánssamningi í sumar eftir að Keinan Davis fór sömu leið.

Steven Gerrard knattspyrnustjóri Villa vill ólmur bæta miðverði við leikmannahópinn sinn sem fyrst þar sem Ezri Konsa, Tyrone Mings og Calum Chambers eru aðeins þrír auk Diego Carlos sem er meiddur næstu mánuðina.

Jan Bednarek hefur verið orðaður við Villa rétt eins og Rob Holding, leikmaður Arsenal. Gamli liðsfélagi hans, Chambers, vill ólmur fá Holding yfir til Villa en Arsenal virðist ekki ætla að leyfa þann flutning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.