Alexander Isak til Newcastle fyrir metupphæð (Staðfest)

Mynd: Newcastle

Mynd: Newcastle

Mynd: Newcastle
Newcastle United hefur kynnt Alexander Isak sem nýjan leikmann félagsins. Félagið gefur ekki upp kaupverðið en samkvæmt Sky Sports greiðir Newcastle 63 milljónir punda fyrir framherjann sem kemur frá Real Sociedad á Spáni.
Isak mætti til Newcastle í gærmorgun og gekkst undir læknisskoðun.
Isak verður í treyju númer fjórtán hjá Newcastle. Hann er fjórði leikmaðurinn sem félagið kaupir í sumar. Áður hafði félagið klárað kaupin á Matt Targett frá Aston Villa, fengið Nick Pope frá Burnley og Sven Botman frá Lille.
Isak er 22 ára Svíi sem hefur á sínum ferli skorað 77 mörk í 192 keppnisleikjum með félagsliðum og níu mörk í 37 landsleikjum.
Á ferlinum hefur hann leikið með AIK, varaliði Dortmund, aðalliði Dortmund, Willem II á láni og Real Sociedad.
63 milljónir punda er það hæsta sem Newcastle hefur greitt fyrir leikmann í sögu félagsins. Joelinton, sem kom frá Hoffenheim, var áður dýrasti leikmaður félagsins en hann kostaði um 40 milljónir punda.

HERE. WE. GO. 🇸🇪 pic.twitter.com/FTdo8vQfW4
— Newcastle United FC (@NUFC) August 26, 2022

Mynd: Newcastle