Grótta 4 - 1 HK
1-0 María Lovísa Jónasdóttir ('31)
2-0 María Lovísa Jónasdóttir ('49)
3-0 María Lovísa Jónasdóttir ('55)
3-1 Guðný Eva Eiríksdóttir ('62)
4-1 Tinna Jónsdóttir ('75)
1-0 María Lovísa Jónasdóttir ('31)
2-0 María Lovísa Jónasdóttir ('49)
3-0 María Lovísa Jónasdóttir ('55)
3-1 Guðný Eva Eiríksdóttir ('62)
4-1 Tinna Jónsdóttir ('75)
Grótta tók á móti HK í Faxaflóamóti kvenna í fallegu veðri á Seltjarnarnesi í dag. Fyrir leikinn var Grótta með sex stig eftir þrjá leiki en HK án stiga eftir tvo.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Grótta komst yfir á 31. mínútu þegar hin 16 ára gamla María Lovísa Jónasdóttir skoraði.
Gróttukonur settu í fluggír í seinni hálfleik og skoraði María Lovísa tvö mörk til viðbótar á fyrstu 10 mínútum hálfleiksins. Þrenna hjá framherjanum unga.
Guðný Eva Eiríksdóttir minnkaði muninn fyrir HK með laglegu skallamarki en Tinna Jónsdóttir skoraði fjórða mark Gróttu og lokatölur 4-1.
Grótta er á toppnum í B-riðli Faxaflóamótsins eftir fjóra leiki með níu stig. HK er á botninum án stiga.
Athugasemdir