Fotbolti.net
01.02.25 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson

Lengjubikar kvenna: Berglind Björg á skotskónum er Blikar unnu FH

Berglind Björg skoraði fyrir Blika en hún samdi aftur við félagið fyrr í þessum mánuði

Berglind Björg skoraði fyrir Blika en hún samdi aftur við félagið fyrr í þessum mánuði

Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
FH 2 - 4 Breiðablik
0-1 Birta Georgsdóttir ('2 )
0-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('5 )
0-3 Agla María Albertsdóttir ('8 )
1-3 Hildur Katrín Snorradóttir ('31 )
2-3 Eva Marín Sæþórsdóttir ('67 )
2-4 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('85 )
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu fyrsta leik sinn í Lengjubikarnum er liðið bar sigurorð af FH, 4-2, í Skessunni í dag.

Blikaliðið mætti áræðið til leiks og komst í 3-0 á fyrstu átta mínútum leiksins.

Birta Georgsdóttir skoraði fyrsta markið eftir að hafa komist framhjá varnarmanni FH og sett boltann á milli fóta Aldísar Guðlaugsdóttur í markinu.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir tvöfaldaði forystuna með góðu skoti þremur mínútum síðar og þá gerði Agla María þriðja markið á áttundu mínútu.

Hildur Katrín Snorradóttir minnkaði muninn fyrir FH og þá varði hin 17 ára gamla Herdís Halla Guðbjartsdóttir vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum fyrir Blika.

Í síðari hálfleiknum skoraði Eva Marín Sæþórsdóttir fyrir FH áður en Edith Kristín Kristjánsdóttir gulltryggði sigur Blika með fínu skoti í nærhornið.

Flott byrjun hjá Blikum sem mæta næst Keflavík á föstudag á meðan FH spilar við Stjörnuna á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.