Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   sun 01. febrúar 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Freysi að bæta fjórða Íslendingnum við hjá Brann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Dagur Þorsteinsson er nálægt því að ganga í raðir norska félagsins Brann. Þýskir miðlar segja frá því að Jón Dagur sé á förum frá Hertha Berlin á láni og hann verði ekki með liðinu gegn Darmstadt í þýsku B-deildinni í dag.

Bergens Tidende í Noregi segir að Jón Dagur sé á leið til Brann. Ef skiptin ganga í gegn verður Jón Dagur fjórði íslenski leikmaðurinn í leikmannahópi félagsins. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins og Sævar Atli Magnússon, Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason eru í leikmannahópnum. Freyr tók við Brann fyrir tímabilið 2025 og endaði liðið í 4. sæti norsku deildarinnar á síðasta ári.

Sævar og Eggert eru að glíma við meiðsli en Kristall er nýkominn til félagsins og gæti spilað sína fyrstu leiki í Evrópudeildarumspilinu þar sem Brann mætir Bologna í tveimur leikjum um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar seinna í þessum mánuði.

Jón Dagur hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá Herthu frá því að hann kom frá belgíska félaginu OH Leuven sumarið 2024. Vængmaðurinn hefur byrjað fimm leiki í 2. Bundesliga á þessu tímabili og komið inn á í fimm til viðbótar. Alls hefur landsliðsmaðurinn komið við sögu í 33 leikjum með Herthu, skorað eitt mark og lagt upp eitt. Hann hefur ekki komið við sögu í síðustu fjórum leikjum.

Þýskir miðlar fjölluðu um það í gær að Hetha ætlaði að fá Josip Brekalo í sínar raðir og það væru komnar fyrirspurnir um Jón Dag.

Jón Dagur, sem uppalinn er hjá HK, er samningsbundinn Hertha Berlin fram á sumarið 2027. Hann er 27 ára og á að baki 52 landsleiki. Hann hefur í þeim skorað sex mörk og lagt upp níu. Á ferlinum hefur hann verið á mála hjá Fulham, AGF, Vendsyssel, Leuven og Herthu Berlin.
Athugasemdir
banner