Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   sun 01. mars 2020 16:19
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Atalanta skoraði sjö gegn Lecce
Lecce 2 - 7 Atalanta
0-1 Giulio Donati ('17, sjálfsmark)
0-2 Duvan Zapata ('22)
1-2 Riccardo Saponara ('29)
2-2 Giulio Donati ('40)
2-3 Josip Ilicic ('47)
2-4 Duvan Zapata ('54)
2-5 Duvan Zapata ('62)
2-6 Luis Muriel ('87)
2-7 Ruslan Malinovskyi ('92)

Atalanta hefur stimplað sig inn sem eitt af skemmtilegustu knattspyrnuliðum heims og hefur gullfallegur sóknarleikur liðsins vakið mikla athygli víða um Evrópu.

Í dag heimsóttu lærisveinar Gian Piero Gasperini fallbaráttulið Lecce og úr varð mikil veisla.

Gestirnir frá Bergamó komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik eftir tvær hornspyrnur. Giulio Donati, varnarmaður Lecce, var einn og óvaldaður í fyrri spyrnunni en skallaði knöttinn engu að síður í eigið net. Duvan Zapata stangaði knöttinn svo í netið fimm mínútum síðar.

Riccardo Saponara sneri stöðunni við fyrir heimamenn. Hann skoraði fyrst glæsilegt mark og lagði svo upp jöfnunarmarkið fyrir Donati. Staðan var því 2-2 í leikhlé.

Gestirnir tóku gjörsamlega öll völd á vellinum í síðari hálfleik og röðuðu inn mörkunum. Josip Ilicic skoraði og lagði upp, Zapata fullkomnaði þrennuna sína og varamennirnir Luis Muriel og Ruslan Malinovskyi komust einnig á blað.

Þetta var þriðji sigur Atalanta í röð í ítölsku deildinni og er liðið í fjórða sæti sem stendur, sex stigum á undan Roma sem heimsækir Cagliari síðar í dag.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner