Fotbolti.net
25.11.26 - 23:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Sigur hjá Andra Lucasi - Hrikalegt gengi hjá Burnley

Championship: Sigur hjá Andra Lucasi - Hrikalegt gengi hjá Burnley
Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn þegar liðið vann Watford í Championship deildinni í kvöld.

Watford fékk tækifæri til að komast yfir undir lok fyrri hálfleiks en Aynsley Pears varði vítaspyrnu frá Iker Bravo.
Blackburn fékk vítaspyrnu eftir tæplega klukkutíma leik og Todd Cantwell skoraði og það reyndist sigurmarkið.

Jordan Zemura, leikmaður Watford, vildi fá vítaspyrnu stuttu síðar en dómari leiksins gaf honum gult spjald fyrir dýfu. Þetta var annað gula spjaldið hans og því var hann rekinn af velli.

Andri Lucas var tekinn af velli þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Blackburn er í 12. sæti með 25 stig, aðeins tveimur stigum frá umspilssæti. Watford er í 20. sæti með 15 stig.

Stoke er taplaust í sjö leikjum í röð eftir sigur á Millwall. Stoke er í 2. sæti með 35 stig, jafn mörg stig og topplið Middlesbrough og stigi á undan Wolves. Millwall er í 18. sæti með 18 stig.

Birmingham vann Burnley og situr í 4. sæti með 32 stig. Burnley er í næst neðsta sæti með 11 stig. Liðið er án sigurs í 24 heimaleikjum í röð.

West Brom er einnig með 32 stig og situr í 5. sæti eftir sigur á Bolton sem er í 19. sæti með 18 stig.

Bolton 1 - 3 West Brom
0-1 Aune Heggebo ('21 )
1-1 Ruben Rodrigues ('63 , víti)
1-2 Felix Horn Myhre ('75 )
1-3 Aune Heggebo ('83 , víti)

Burnley 0 - 2 Birmingham
0-1 August Priske ('7 )
1-1 Jaydon Banel ('52 , sjálfsmark)
1-1 Demarai Gray ('87 , Misnotað víti)

Stoke City 2 - 1 Millwall
1-0 George Hirst ('13 )
2-0 George Hirst ('40 )
2-1 Mark Sykes ('81 )

Watford 0 - 1 Blackburn
0-0 Iker Bravo ('45 , Misnotað víti)
0-1 Todd Cantwell ('57 , víti)
Rautt spjald: Jordan Zemura, Watford ('62)

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.