Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
banner
   sun 01. mars 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Toppbaráttuslagur í Leipzig
Það eru tveir leikir á dagskrá í þýska boltanum í dag. Wolfsburg heimsækir nýliða Union Berlin í hádeginu áður en RB Leipzig og Bayer Leverkusen mætast í toppbaráttunni.

Wolfsburg getur unnið sinn þriðja deildarleik í röð og farið upp í sjötta sæti með sigri í dag. Union Berlin er fimm stigum á eftir Wolfsburg.

RB Leipzig er í öðru sæti, fjórum stigum eftir toppliði FC Bayern. Leverkusen er fimm stigum eftir Leipzig en á mjög góðu skriði í öllum keppnum.

Leverkusen er búið að vinna þrjá deildarleiki í röð auk þess að slá Porto úr Evrópudeildinni og Stuttgart úr þýska bikarnum.

Heimamenn í Leipzig eru að glíma við mikið af meiðslum. Timo Werner, Ethan Ampadu og Yussuf Poulsen eru meðal tæpra leikmanna fyrir leikinn.

Að lokum átti viðureign Werder Bremen og Eintracht Frankfurt að fara fram. Leiknum þurfti að fresta vegna leiks Frankfurt gegn Salzburg í Evrópudeildinni föstudagskvöldið.

Leikir dagsins:
12:30 Union Berlin - Wolfsburg
14:30 RB Leipzig - Bayer Leverkusen

Frestað
Werder Bremen - Eintracht Frankfurt
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 13 12 1 0 49 9 +40 37
2 RB Leipzig 14 9 2 3 29 16 +13 29
3 Dortmund 13 8 4 1 23 11 +12 28
4 Leverkusen 14 8 2 4 30 19 +11 26
5 Hoffenheim 14 8 2 4 29 20 +9 26
6 Eintracht Frankfurt 14 7 3 4 29 29 0 24
7 Stuttgart 13 7 1 5 21 22 -1 22
8 Union Berlin 14 5 3 6 19 23 -4 18
9 Köln 14 4 4 6 22 23 -1 16
10 Freiburg 13 4 4 5 20 22 -2 16
11 Gladbach 14 4 4 6 18 22 -4 16
12 Werder 13 4 4 5 18 24 -6 16
13 Wolfsburg 14 4 3 7 20 24 -4 15
14 Hamburger 14 4 3 7 15 24 -9 15
15 Augsburg 14 4 1 9 17 28 -11 13
16 St. Pauli 14 3 2 9 13 26 -13 11
17 Heidenheim 14 3 2 9 13 30 -17 11
18 Mainz 13 1 3 9 11 24 -13 6
Athugasemdir
banner
banner