Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 01. apríl 2023 17:13
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Öruggt hjá Njarðvík og KFK - Ýmir úr leik
Kenneth Hogg skoraði fyrir Njarðvík
Kenneth Hogg skoraði fyrir Njarðvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFS er komið í aðra umferð
KFS er komið í aðra umferð
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KFK, KFS og Njarðvík eru öll komin áfram í aðra umferð Mjólkurbikarsins eftir góða sigra í dag.

KFS lagði Ými að velli, 2-1, í Kópavogi. Ásgeir Elíasson kom KFS yfir á 14. mínútu en nafni hans, Ásgeir Lúðvíksson, jafnaði á 73. mínútu. KFS spilar við Þrótt í næstu umferð en Þróttarar unnu átján marka sigur á Stokkseyri í fyrstu umferð.

Þegar fjórar mínútur voru eftir tryggði Ásgeir liði KFS sigurinn áður en Herði Mána Ásmundssyni, leikmanni Ýmis, var vikið af velli undir lok leiks.

Njarðvík vann öruggan 4-0 sigur á Herði frá Ísafirði. Marc Mcausland og Kenneth Hogg skoruðu á fyrstu tíu mínútunum áður en Tómas Bjarki Jónsson og Rafael Victor kláruðu gestina í þeim síðari. Njarðvík mætir SR eða Augnabliki í næstu umferð.

KFK úr Kópavogi vann þá 7-1 sigur á Reyni H. Vladyslav Kudryavtsev skoraði tvö fyrir KFK í leiknum. KFK mætir Selfyssingum í annarri umferð.

Úrslit og markaskorarar:

Ýmir 1 - 2 KFS
0-1 Ásgeir Elíasson ('14 )
1-1 Ásgeir Lúðvíksson ('73 )
1-2 Ásgeir Elíasson ('86 )
Rautt spjald: Hörður Máni Ásmundsson , Ýmir ('90)

Njarðvík 4 - 0 Hörður Í.
1-0 Marc Mcausland ('7 )
2-0 Kenneth Hogg ('10 )
3-0 Tómas Bjarki Jónsson ('46 )
4-0 Rafael Alexandre Romao Victor ('76 , Mark úr víti)

Reynir H 1 - 7 KFK
0-1 Vladyslav Kudryavtsev ('7 )
0-2 Patrekur Hafliði Búason ('19 )
0-3 Mateusz Supryn ('39 )
0-4 Rúnar Freyr Þórhallsson ('41 )
1-4 Mykyta Adamenko ('58 )
1-5 Birgir Natan Hreinsson ('70 , Sjálfsmark)
1-6 Aðalsteinn Örn Ragnarsson ('84 )
1-7 Vladyslav Kudryavtsev ('88 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner