Fotbolti.net
11.09.26 - 21:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Tap í fyrsta deildarleik Þóris Jóhanns

Ítalía: Tap í fyrsta deildarleik Þóris Jóhanns
Canon

Mynd: EPA

Venezia 2 - 4 Fiorentina
1-0 Akor Adams ('22 )
1-1 Franco Mastantuono ('29 )
1-2 Franco Mastantuono ('30 )
1-3 Mateo Pellegrino ('66 )
1-4 Franco Mastantuono ('84 )
2-4 Antoine Hainaut ('86 )
Franco Mastantuono, lánsmaður frá Real Madrid, fór hamförum þegar Fiorentina nældi í sinn fyrsta sigur í ítölsku deildinni í kvöld.

Liðið heimsótti Venezia en heimamenn komust yfir. Mastantuono sá hins vegar til þess að Fiorentina var með forystuna í hálfleik en hann skoraði tvö mörk með mínútu millibili.

Hann fullkomnaði síðan þrennu sína undir lokin þegar hann skoraði fjórða mark liðsins en Mateo Pellegrino skoraði þriðja markið eftir rúmlega klukkutíma leik. Antoine Hainaut minnkaði muninn fyrir Venezia.

Þórir Jóhann Helgason byrjaði á bekknum hjá Venezia en kom inn á undir lok fyrri hálfleiks. Þetta var fyrsti leikurinn hans í deildinni fyrir liðið. Venezia er án stiga eftir fjórar umferðir en Fiorentina er með þrjú stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.