Fotbolti.net
11.09.26 - 21:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mjólkurbikarinn: Breiðablik bikarmeistari 2026

Mjólkurbikarinn: Breiðablik bikarmeistari 2026
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Afturelding 1 - 2 Breiðablik
0-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('4 )
0-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('40 )
1-2 Óli Valur Ómarsson ('78 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn
Breiðablik tryggði sér Mjólkurbikarmeistaratitilinn í annað sinn í sögu félagsins eftir sigur á Aftureldingu í úrslitum í kvöld. Breiðablik náði forystunni snemma leiks. Höskuldur Gunnlagusson átti fast skot sem Arnar Daði Jóhannesson réð ekki við.

Þorleifur Úlfarsson hefði síðan átt að skora annað mark Blika eftir stundafjórðung þegar hann slapp í gegn en Andi Hoti bjargaði á síðustu stundu. Markið hefði ekki fengið að standa þar sem boltinn fór i höndina á Þorleifi í aðdragandanum.

Anton Logi Lúðvíksson var mögulega heppinn að sleppa með gult spjald þegar hann tæklaði í ökklann á Gunnari Bergmann Sigmarssyni.

Breiðablik bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks þegar Kristófer Ingi Kristinsson skoraði með góðu skoti úr teignum.

Afturelding setti mikla pressu á mark Breiðabliks í seinni hálfleik. Þeim tókst að minnka muninn þegar Aron Elí Sævarsson setti boltann fyrir og hann fór af Óla Val Ómarssyni og í netið.

Joacim Holtan gat síðan jafnað metin þegar hann átti skot fyrir utan teiginn en boltinn fór framhjá. Nær komst Afturelding ekki og Breiðablik tryggði sér bikarmeistaratitilinn í annað sinn í sögunni.
Mjólkurbikarinn: Breiðablik bikarmeistari 2026
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.