Fotbolti.net
01.05.17 - 21:53
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Rúnar Páll: Er það ekki bara eitthvað kjaftæði?

Auglýsing
Rúnar Páll var sáttur með leik sinna manna í kvöld

Rúnar Páll var sáttur með leik sinna manna í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Rúnar Páll, þjálfari Stjörnunnar var ánægður með leik sinna manna í kvöld en Stjarnan gerði jafntefli við Grindavík, 2-2.

<i>„Mér fannst við spila vel í fyrri hálfleik þótt svo að staðan var 2-1. Áttum góð upphlaup og fyrri hálfleikur mjög góður hjá okkur,\"</i> sagði Rúnar Páll.

Veðrið hafði mikil áhrif á leikinn en Rúnar er sáttur með stigið.

<i>„Það var bálhvasst og ég held að liðin gerðu ágætlega vel í þessu. Þetta var kannski svolítil einstefna hjá okkur, það lá svolítið á Grindvíkingum. Í heildina held ég að við getum farið héðan sáttir með eitt stig.\"</i>

Grindvíkingar vildu fá aukaspyrnu í seinna marki Stjörnunnar og Rúnar vildi lítið tjá sig um það.

<i>„Ég veit ekkert um það. Er það ekki bara eitthvað kjaftæði? Ég veit ekkert um það, ég verð bara að sjá þetta.\"</i>

Grindavík fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik og taldi Rúnar það vera rétt ákvörðun dómarans.

<i>„Já það leit þannig út.\"</i>

Rúnar ætlar ekki að styrkja leikmannahóp sinn, áður en að glugginn lokar þnn 15. maí.

<i>„Nei ég get lofað því. Erum með fínt lið og góðan hóp sem við ætlum að stóla á.\"</i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.