Fotbolti.net
20.10.26 - 00:35
Ívan Guðjón Baldursson
Steypustöðin

Sterkastur í 26. umferð - Sló stoðsendingametið í efstu deild

Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)

Tryggvi í leiknum gegn KA á laugardaginn.

Tryggvi í leiknum gegn KA á laugardaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Tryggvi Hrafn Haraldsson sló stoðsendingamet efstu deildar íslenska boltans með þremur stoðsendingum í flottum sigri Vals gegn KA síðasta laugardag.
Sterkasta lið 26. umferðar - Táningar Þórs tóku málin í sínar hendur
TENGT EFNI

Sterkasta lið 26. umferðar - Táningar Þórs tóku málin í sínar hendur

Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 KA
Tryggvi Hrafn er þar með kominn með 15 stoðsendingar í Bestu deildinni í sumar og 10 mörk.

Hann bætir gamla stoðsendingametið um tvær stoðsendingar en fimm mismunandi leikmenn hafa náð 13 stoðsendingum á einu tímabili í efstu deild.

Þeir eru Hallgrímur Mar Steingrímsson, Kjartan Kári Halldórsson, Atli Guðnason, Tryggvi Guðmundsson og Adam Ægir Pálsson. Tölfræðin er fengin úr Íslensk knattspyrna, bókunum hans Víðis Sigurðssonar og það er Óskar Ófeigur Jónsson sem hefur haldið utan um stoðsendingatölfræðina.

Tryggvi er á leið heim til ÍA eftir tímabilið og skilur eftir sig skarð sem verður hægara sagt en gert að fylla á Hlíðarenda.

Mark Tryggva gegn KA


Sterkustu leikmenn:
25. umferð - Gils Gíslason (FH)
24. umferð - Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)
23. umferð - Sigurður Breki Kárason (KR)
22. umferð - Viktor Jónsson (ÍA)
21. umferð - Oliver Ekroth (Víkingur)
20. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
19. umferð - Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)
18. umferð - Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
17. umferð - Jökull Andrésson (FH)
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Sterkastur í 26. umferð - Sló stoðsendingametið í efstu deild
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.