01.05.21 - 15:10
Aksentije Milisic
Ítalía: Botnbaráttan harðnar

Saponara bjargaði stiginu.

Mynd: Getty Images

Saponara bjargaði stiginu.

Mynd: Getty Images
<b>Verona 1 - 1 Spezia</b>
1-0 Eddie Salcedo ('46 )
1-1 Riccardo Saponara ('86 )
1-0 Eddie Salcedo ('46 )
1-1 Riccardo Saponara ('86 )
Fyrsta leik dagsins er lokið í ítölsku deildinni en þar mættust Verona og Spezia.
Verona er um miðja deild á meðan Spezia er í botnbaráttunni svo það var mikið undir fyrir gestina í dag.
Verona komst yfir á fyrstu mínútunni í síðari hálfleiknum en það var Eddie Salcedo sem skoraði mark heimamanna.
Allt stefndi í sigur Verona en fjórum mínútum fyrir leikslok náðu gestirnir að tryggja sér mikilvægt stig. Riccardo Saponara bjargaði þá stiginu fyrir Spezia.
Spezia er núna þremur stigum frá fallsæti en liðin í kring eiga öll leik til góða. Verona er í tíunda sætinu.