01.06.05 - 09:46
Edu til Valencia (Staðfest)

Brasilíumaðurinn Edu hefur skrifað undir fimm ára samning við spænska liðið Valencia. Arsenal hafa nú staðfest þetta en Valencia skýrðu reyndar frá þessu í gær.
Quique Sanchez Flores er nýráðinn þjálfari liðsins og er Edu fyrsti maðurinn sem hann fær til liðsins. Í frétt á heimasíðu Arsenal segir: "Edu er genginn til liðs við Valencia á fimm ára samning. Brasilíumaðurinn kveður Arsenal eftir að samningur hans rennur út."
Edu hefur verið tábrotinn undanfarnar vikur og var að ná sér undir lok tímabilsins. Hann kom nokkrum sinnum inná sem varamaður en hann var reyndar nálægt því að fara til Valencia í janúar. Hann kom til Arsenal frá Corinthians ári ð 2001 og síðan þá hefur hann meðal annars spilað með landsliði Brasilíu.