Oblak orðaður við Man Utd - Ungur leikmaður Blackburn á blaði Everton og Man Utd - Liverpool hefur enn áhuga á Bruno
banner
   fim 01. júní 2023 23:02
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Ýmir hafði betur í nágrannaslag
watermark
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Augnablik 2 - 3 Ýmir
1-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('6 )
1-1 Arian Ari Morina ('43 )
2-1 Rúnar Ingi Eysteinsson ('56 )
2-2 Aðalsteinn Einir L Kristinsson ('67 )
2-3 Hákon Freyr Jónsson ('71 )

Ýmir vann fyrsta leik sinn í 3. deild karla í sumar og valdi liðið rétta tilefnið til þess en það var gegn nágrönnum þeirra í Augnabliki.

Rúnar Ingi Eysteinsson kom Blikum í 1-0 á 6. mínútu en Arian Ari Morina tókst að jafna rétt undir lok fyrri hálfleiksins.

Síðari hálfleikur byrjaði nákvæmlega eins og fyrri því aftur kom Rúnar Ingi liði Augnablik í forystu snemma hálfleiksins.

Aðalsteinn Enir L. Kristinsson jafnaði metin rúmum tíu mínútum síðar áður en Hákon Freyr Jónsson gerði sigurmark Ýmis á 71. mínútu.

Fyrsti sigur Ýmis staðreynd og liðið nú með 4 stig í 10. sæti en um leið var þetta fyrsta tap Augnabliks sem er í öðru sæti með 10 stig.
3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Reynir S. 22 15 2 5 61 - 30 +31 47
2.    Kormákur/Hvöt 22 14 3 5 49 - 27 +22 45
3.    Árbær 22 13 3 6 53 - 37 +16 42
4.    Víðir 22 13 2 7 40 - 29 +11 41
5.    Kári 22 9 5 8 38 - 36 +2 32
6.    Augnablik 22 9 4 9 34 - 33 +1 31
7.    Magni 22 7 7 8 42 - 39 +3 28
8.    Elliði 22 8 3 11 44 - 49 -5 27
9.    Hvíti riddarinn 22 7 2 13 30 - 47 -17 23
10.    ÍH 22 5 6 11 44 - 58 -14 21
11.    KFS 22 6 3 13 25 - 48 -23 21
12.    Ýmir 22 4 4 14 34 - 61 -27 16
Athugasemdir
banner