Austurríki og Túnis eru á lokametrunum í undirbúningi sínum fyrir HM. Liðin mættust í æfingaleik í Austurríki í kvöld.
Á 37. mínútu kom sending inn fyrir vörn Austurríkis en Konrad Laimer, leikmaður Bayern, setti höndina í boltann og fékk rautt spjald.
Á 37. mínútu kom sending inn fyrir vörn Austurríkis en Konrad Laimer, leikmaður Bayern, setti höndina í boltann og fékk rautt spjald.
Þrátt fyrir að vera manni færri skoraði Marcel Sabitzer, leikmaður Dortmund, sigurmark Austurríkis. Stefan Posch átti sendingu út í teiginn og Sabitzer skoraði með góðu skoti.
Austurríki mætir Gvatemala í síðasta leiknum fyrir HM þann 11. júní í Kaliforníu. Túnis heimsækir Belgíu þann 6. júní. Þá unnu Tyrkir gegn Norður-Makedóníu. Tyrkland mætir Venesúela þann 6. júní í sínum síðasta leik fyrir HM.
Tyrkland 2 - 0 Norður-Makedónía
1-0 Orkun Kokcu ('2 )
2-0 Can Yilmaz Uzun ('16 )
Austurríki 1-0 Túnis
1-0 Marcel Sabitzer ('63 )
Rautt spjald: Konrad Laimer ('37 )
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




