Fotbolti.net
22.06.26 - 02:36
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Salah opnaði markareikninginn

Mo Salah er kominn á blað

Mo Salah er kominn á blað

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah er búinn að opna markareikning sinn á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó en Egyptar hafa snúið taflinu við eftir að hafa lent undir gegn Nýja-Sjálandi.
Egyptar voru 1-0 undir í hálfleik eftir skallamark Finn Surman úr hornspyrnu.

Í byrjun síðari hálfleiks tóku Egyptar almennilega við sér. Moustafa Ziko jafnaði með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri og skömmu síðar opnaði Salah markareikning sinn á mótinu og kom Egyptum yfir.

Sjáðu markið hjá Ziko

Salah var með boltann á hægri vængnum, spilaði skemmtilegt þríhyrningsspil við Ziko og setti boltann síðan niðri í vinstra hornið af stuttu færi.

Þetta var fyrsta mark Salah á mótinu og hans þriðja mark á heimsmeistaramóti sem gerir hann að markahæsta leikmanni Egyptalands í sögu HM. Markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Salah

Staðan er 2-1 fyrir Egypta þegar komið er að seinni vatnspásu leiksins og um tuttugu mínútur eftir.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.