Kári: Ég get viðurkennt það, ég var neikvæður
Auglýsing

Kári Sigfússon - leikmaður Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Sigfússon - leikmaður Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkismenn sigruðu Gróttu á Vivaldivellinum 2-5 á Seltjarnarnesi í kvöld. Kári Sigfússon var fremstur meðal jafningja í liði Fylkis í dag. Hann skoraði gott mark, var drífandi og sýndi heilt yfir framúrskarandi leik í dag.
Stutt er síðan liðin mættust í bikarnum en Fylkir hafði einnig betur í þeim leik eftir að hafa lent undir.

Lestu um leikinn: Grótta 2 - 5 Fylkir
Þegar lið mætast tvisvar á stuttum tíma má búast við öðruvísi stemningu innan hópsins. Við því hafði Kári þetta að segja:
"Það var bara alvöru gír í liðinu. Við þurftum að bíða lengi eftir þessum leik í dag, við tókum æfingu í morgun og vorum bara mjög gíraðir. Hópurinn er mjög vel saman settur og alltaf í góðum gír."
Hvernig fannst þér liðið bregðast við eftir að hafa lent undir?
"Við brugðumst ekki nógu vel við í fyrri hálfleik. Þetta var súrt hjá okkur, við vorum neikvæður og ég get viðurkennt það að ég var neikvæður. Svo kemur Heimir bara með frábæra ræðu í hálfleik og snýr þessu bara við. Hann sagðist ætla að vera full kurteis í hálfleik. Hann sagði okkur bara að halda áfram, það væri ekkert lið sem gæti hlaupið með okkur í 90 mínútur. "
Kári hefur skorað í þremur leikjum í röð og hefur einnig verið duglegur við að leggja upp fyrir félaga sína. Aðspurður hverju það væri að þakka var Kári hógvær og benti á liðsfélaga sína.
"Maður þarf bara að vera duglegur að koma sér í boxið og vera með frábæra liðsfélaga. Theodór Ingi kom með geðveika sendingu í dag!"
Viðtalið við Kára má sjá hér í spilaranum að ofan