Fotbolti.net
21.06.26 - 11:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chelsea hefur áhuga á Wirtz - Búast við tilboði frá PSG í Diomande

Chelsea hefur áhuga á Wirtz - Búast við tilboði frá PSG í Diomande
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Florian Wirtz, Nick Woltemade, Luka Vuskovic, Yan Diomande, Elliot Anderson og fleiri koma við sögu.
Chelsea fylgist með Florian Wirtz, 23, leikmanni Liverpool, sem var frábær hjá Leverkusen undir stjórn Xabi Alonso, núverandi stjóra Chelsea. Það fer eftir því hvort Enzo Fernandez, 25, yfirgefi félagið. (Football Insider)

Felix Nmecha, miðjumaður Dortmund, er opinn fyrir því að fara frá félaginu en Liverpool og Man Utd hafa áhuga á þessum 25 ára gamla leikmanni. (Teamtalk)

Newcastle gæti verið tilbúið að selja þýska framherjann Nick Woltemade, 24. Aston Villa, Dortmund og Atletico hafa áhuga. (AS)

Brighton hefur lagt fram endurbætt tilboð í Luka Vuskovic, 19, varnarmann Tottenham. Tilboðið hljóðar upp á 45 milljónir punda með viðbætum. (Mail)

RB Leipzig býst við tilboði frá Paris Saint-Germain í Yan Diomande, 19, eftir að félagið hafnaði 100 milljón evra tilboði frá Liverpool. (Bild)

Ef Elliot Anderson, 23, fer til Man City gæti það fleygt af stað atburðarás þar sem Forest fær Davide Frattesi frá Inter og ítalska félagið fær Curtis Jones frá Liverpool. (Gazzetta dello Sport)

Leeds hefur boðið Harry Wilson, 29, langtímasamning en hann fæst á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Fulham rann út. (Football Insider)

Bayern ætlar að hefja viðræður aftur við Michael Olise, 24, um nýjan samning eftir að Real Madrid og PSG sýndu honum áhuga. (AS)

Juventus er tilbúið að selja kanadíska framherjann Jonathan David, 26, og hafa sett 30 milljón evra verðmiða á hann. (Corriere dello Sport)

PSG vill fá 40 milljónir evra fyrir Randal Kolo Muani og þessi 27 ára gamli franski framherji vill fara aftur til Juventus. Ítalska félagið er einnig að íhuga að fá Alexander Sörloth, 30, frá Atletico Madrid. (Corriere dello Sport)

Manchester City er nálægt því að ná fjárhagslegu samkomulagi við Chelsea sem gerir þeim kleift að ráða Enzo Maresca sem knattspyrnustjóra. (Guardian)
Chelsea hefur áhuga á Wirtz - Búast við tilboði frá PSG í Diomande
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.