Fotbolti.net
21.06.26 - 22:07
Viktor Ingi Valgarðsson

Nenad: Ég vil ekki segja eitthvað sem ég er ekki viss um og missa trúverðugleika

Auglýsing
Nenad Zivanovic þjálfari Ægis

Nenad Zivanovic þjálfari Ægis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

3-1 tap var niðurstaðan þegar Ægir fékk topplið Lengjudeildarinnar Þrótt R. í heimsókn á GeoSalmo völlinn í Þorlákshöfn.

Hörkuleikur þar sem að Ægir leiddi 1-0 í hálfleik en missti síðan öll stigin frá sér og þriðja tapið í deildinni í röð niðurstaðan. Nenad Zivanovic þjálfari Ægis var til taks í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: Ægir 1 - 3 Þróttur R.

„Það verður mjög leiðinlegt að tapa leikjum svona. Við náðum að spila í svona 45-60 mínútur en eftir að við gerum mistök og fáum víti á okkur verður þetta erfitt og snemma eftir það fáum við annað mark á okkur. Þetta er þriðji eða fjórði leikurinn sem fer svona og sagan okkar en ég vona að þetta fari að breytast."

Ægir leit ágætlega út í fyrri hálfleik og náðu að halda Þrótti frá einhverjum dauðafærum en annað var upp á teninginn í þeim seinni og þegar Nenad var spurður út í hvað kemur fyrir í seinni svaraði hann. „Góð spurning, í fyrri vorum við þéttir en ég verð að segja kannski er skiptingin mín í hálfleik (Baptiste fór útaf fyrir Stojanovic) sem breytir leiknum, en ég er ekki viss."

Þróttur fékk vítaspyrnu sem þeir heldur betur nýttu sér í að komast í leikinn en spurning er hvort dómurinn hafi verið fremur "soft". „Ég ætla ekki að "commenta" á dómara. Ég trúi að þeir hafi góða sýn og góðan ásetning. Ég vil ekki segja eitthvað sem ég er ekki viss um og missa trúverðugleika."

Framundan hjá Ægir er mikilvægur leikur gegn Grindavík. „Barátta um líf í deildinni, þannig að sjálfssögðu mikilvægur leikur. Verður erfiður en við þurfum að spila okkar besta leik og vona það besta."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.