„Kitlar alltaf að spila einhvern tímann með KA"
Auglýsing

Mynd: Álaborg

Mynd: AaB/Sebastian Holmquist

Mynd: Álaborg
„Ég tengi rosalega sterkt við KA, myndi segja að það væri mitt uppeldisfélag þrátt fyrir að ég hafi bara verið hér á sumrin. Ég á mjög marga vini hérna og þekki næstum alla," segir Nóel Atli Arnórsson.
Nóel spilar í vörn Álaborgar í Danmörku en ræddi við Fótbolta.net á Akureyri í liðinni viku. Hann var í sumarfríi en undirbúningstímabilið í Danmörku er að hefjast. U21 landsliðsmaðurinn var spurður hvort hann myndi velja KA eða Álaborg.

„Þetta er erfitt, er búinn að vera í Álaborg síðustu sex árin og get ekki svarað þessu. Ég elska bæði félög."
Sérðu fyrir þér á einhverjum tímapunkti að spila með KA?
„Það er alltaf eitthvað sem kitlar og segir manni að maður verði að spila hérna einhvern tímann. Og mig langar það virkilega , vona að það gerist einhvern tímann."
Faðir Nóels er Arnór Atlason sem fór á mörg stórmót með íslenska landsliðinu í handbolta, spilaði með KA, var hluti af silfurliðinu í Peking og er í dag aðstoðarþjálfari handboltalandsliðsins.
Af hverju er Nóel ekki handboltamaður?
„Ég var valinn í fótboltaakademíu þegar ég var 13 ára, byrjaði að æfa 4-5 sinnum í viku og á sama tíma voru tvær handboltaæfingar í viku. Mér fannst ógeðslega skemmtilegt í báðu, en svo var ég bara kominn inn í akademíuna og það tók yfir. Ég var á miðjunni í handbolta, dreifa boltum, var ekkert það hávaxinn, leitaði uppi skytturnar sem voru stærri. Það er engin eftirsjá í dag, en þegar ég horfi á handboltaleiki þá vil ég alltaf vera inni á vellinum, getur verið erfitt að horfa," segir Nóel.
Hann fylgist vel með Bestu deildinni á Íslandi og hefur gaman af.
Viðtalið við Nóel má nálgast í heild sinni í spilaranum efst.