Sjáðu markið: Hvað var markvörðurinn að gera?

Muslera hefur átt betri daga

Mynd: EPA

Muslera hefur átt betri daga

Mynd: EPA
Fernando Muslera, markvörður Úrúgvæ, er ekki að eiga sinn besta dag í markinu, en hann gat gert betur í fyrsta markinu og fór síðan í ævintýralegt skógarhlaup í seinna markinu sem það fékk á sig gegn Grænhöfðaeyjum.
Markvörðurinn hefði átt að gera betur í aukaspyrnumarki Kevin Pina af um 35 metra færi. Skotið var vissulega fast en hann var lengi niður í hornið og markið skrifast að einhverju leyti á hann.
Úrúgvæ náði að snúa taflinu við undir lok fyrri hálfleiks og komst í 2-1 forystu en þegar um hálftími er eftir er staðan aftur orðin jöfn.
Helio Varela nýtti sér slaka sendingu til baka en Fernando Muslera gerði honum lífið auðveldara með því að rjúka út á móti þegar þess þurfti ekki. Miðvörður Úrúgvæ var í ágætis stöðu en Muslera ákvað engu að síður að keyra út úr markinu.
Varela kom boltanum framhjá honum og setti hann síðan örugglega í netið.
Sjáðu markið og skógarhlaupið

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!