Elías Már: Hef aldrei verið í jafn góðu liði


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur fór illa með Fram á Lambhagavellinum í 11. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Lokatölur voru 0-5 og Elías Már skoraði þrennu í leiknum. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Elías eftir leikinn.
„Tilfinningin er mjög góð, það er mjög ánægjulegt að skora aftur eftir smá þurrð. Ég er mjög ánægður með liðsheildina hér í dag, við vorum mjög þéttir til baka og sköpuðum mikið af færum og skoruðum fimm mörk sem er bara mjög gott.''
Frammistaðan hjá Víkingum var virkilega sannfærandi í kvöld gegn Fram sem hafði sótt 19 stig í síðustu sjö leikjum.
„Framararnir eru með frábært lið og þeir eru búnir að vera að spila bara frábærlega í sumar. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur en við erum bara með það öfluga liðsheild að leið og við komumst í færi þá einhvern veginn náum við alltaf að troða inn einu til tveimur mörkum, en í kvöld fengum við fimm sem er bara mjög ánægjulegt.''
Elías skoraði þrennu í dag og er kominn með 12 mörk í deildinni. Hann er markahæsti maður mótsins til þessa.
„Síðan ég kom hefur mér bara liðið mjög vel og það hafa allir bara tekið vel á móti manni. Ég hef aldrei verið í jafn góðu liði eins og hérna, ekki bara leikmennirnir heldur fólkið í kring, það eru allir frábærir. Þetta er bara mjög ljúft.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.



