Linta: Fannst við verðskulda sigurinn
Auglýsing

Aleksandar Linta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér er ekki alveg sama, en ef við náum í úrslit er ég þokkalega sáttur. Hrós á strákana, við byrjuðum leikinn á að lenda undir á 30 sekúndum. Þeir sýna smá karakter og ná að komast í gegnum erfiðan kafla og skora tvö mörk. Þeir skapa ekki mörg færi en einhver. Þetta var kannski ekki besta frammistaðan og meira kannski barátta, en sumir leikir eru spilaðir svona þegar pressað er hátt þá getur leikurinn orðið svona,“ sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir 2-1 sigurinn á Stjörnunni á Hásteinsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 Stjarnan
Eyjamenn komu til baka eftir að hafa lent undir eftir aðeins hálfa mínútu og unnu sinn þriðja deildarleik í röð.
Þeir eru að finna taktinn eftir erfiða byrjun, en er hann búinn að finna sigurformúluna?
„Ef þú ert að bera frammistöðuna saman, nei, en ef þú berð úrslitin saman þá er svarið já. Við gerðum líka jafntefli þannig við erum án taps í fjórum leikjum. Ég er að reyna tala við strákana um að halda hreinu, það er aðalmarkmiðið, en okkur hefur ekki tekist það í þessum leikjum,“ sagði Linta við Fótbolti.net.
Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu undir lok síðari hálfleiks er Omar Sowe var felldur í teignum. Var þetta víti?
„Mér fannst þetta augljóst víti, en það kom mér á óvart að dómarinn hafi ekki gert neitt í því. Ég er með með mikla reynslu og þú sömuleiðis, en ég þarf að sjá atvikið aftur og kannski hef ég rangt fyrir mér.“
„Ímyndaðu þér ef þú ert að leiða 2-1 og kemst í tvö góð færi til að skora til að komast í 3-1 eða 4-1. Það myndi hjálpa okkur mikið og við þurfum ekki að þjást jafn mikið, en ég verð að hrósa strákunum og Stjörnunni. Þetta var bara einn af þessum leikjum sem við þurftum að komast í gegnum og fannst við verðskulda sigurinn,“ sagði Linta ennfremur.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 12 | +35 | 34 |
| 2 | KR | 11 | +13 | 25 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 11 | +9 | 19 |
| 5 | Valur | 12 | -4 | 16 |
| 6 | ÍA | 10 | -3 | 15 |
| 7 | Keflavík | 11 | -7 | 12 |
| 8 | Stjarnan | 12 | -5 | 11 |
| 9 | ÍBV | 11 | -5 | 11 |
| 10 | KA | 11 | -6 | 10 |
| 11 | Þór | 11 | -19 | 7 |
| 12 | FH | 11 | -13 | 6 |