Heimir: Ég æsti mig nú ekkert
Auglýsing

Heimir Guðjónsson - þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson - þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkismenn gerðu góða ferð á Seltjarnarnes í kvöld og fóru heim í Árbæinn með 2-5 sigur gegn liði Gróttu. Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með úrslitin í dag.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 5 Fylkir
"Fyrri hálfleikurinn var ekki góður af okkar hálfu. Við spiluðum í sjálfu sér ekkert illa en jafnvægið var ekki gott þegar að við töpuðum boltanum, þeir voru að komast í hraðar sóknir. Ákvarðanartakan var ekki góð á síðasta þriðjung."
Fylkismenn voru 2-0 undir í hálfleik en sneru leiknum sér í vil á stuttum kafla í upphafi seinni hálfleiks.
"Seinni hálfleikur var frábær og við sýndum góðan karakter. Við lendum 2-0 undir á erfiðum útivelli og spiluðum að mínu mati frábærlega í seinni hálfleik og unnum sterkan sigur. Við fórum yfir hlutina í hálfleik, ég æsti mig nú ekkert, ég var bara hreinskilinn við menn. Ég ætla ekki að segja það hafi endilega verið það sem virkaði en menn voru allavega klárir að vinna saman sem lið í seinni hálfleik."
"Fyrsta markið er vendipunkturinn í leiknum, það kemur okkur svolítið af stað. Ég er ánægður með að við héldum áfram, við vorum ekkert að leggjast niður þó að við værum komnir í 3-2. Við vildum bæta við." sagði Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis
Allt viðtalið við Heimi má finna í spilaranum hér að ofan